Tuesday, January 5, 2010

Blórabögglar og brotnir speglar

Mér finnst ákvörðun forsetans rökrétt en treysti þó ekki almúganum sem er oft reiður og þrjóskur og finnur sér auðvelda leið í því að grýta blóraböggla sína úr fjarlægð.  Megi þeir svara fyrir sig ef þeir hafa brotið af sér í samkvæmi við lögin en ef að um siðferðisbrot er að ræða megi samviskan naga þá en lagana þjónn sem og ásakanir um lögbrot víkja frá þeim.  Ég sem tilheyri þessri þjóðarsamstæðu finnst að okkur beri skylda til þess að rísa með okkar bestu mönnum sem og falla með okkar síðstu og í því felst bæði að njóta þess auðs sem góðir afla sem og borga þær skuldir sem hinir síðri sanka að sér.  
     Gagnvart hinum síðri tefla margir fram sakleysi sínu sem æðstu dyggð en hvar er hróðurinn falinn í slíku aðgerðarleysi sem hvetur til slíkrar ábyrgðarfyrringar við manninn sér á hægri og vinstri hönd. Og þó að hinir síðri flýji af hólmi er það engin afsökun fyrir okkur sem eftir sitjum heima, hvort sem af vali eða neyð, að láta drasl þeirra afskiptalaust því annars verðurðu það í raun og veru að okkar eigin drasli.  Þar með verðum við hin síðri sem flýja af hólmi.


-Naskur